Gullmót KR 11.-13. febrúar

Gullmót KR 2011 fer fram í Laugardalslaug 11.-13. febrúar í 50 m brautum. Á þetta mót fara sundmenn Óðins í afrekshópi, úrvalshópi, framtíðarhópi og hákörlum. Mótið er opið öllum aldursflokkum þar sem keppt er i 82 greinum í 6 mótshlutum, auk KR Super Challenge á laugardagskvöldi, þar sem keppt er í 50 m flugsundi.

Skráningar fyrir Gullmót KR:

Skráningar Óðins Gullmót KR 2011 - Síða með öllum skráningum

Ferðatilhögun
Farið verður með rútu frá planinu sunnan við Íþróttahöllina stundvíslega kl. 9 að morgni föstudagsins 11. febrúar og til baka á sunnudag að móti loknu milli kl. 17 og 18.

Gisting og matur er í Laugalækjarskóla rétt hjá sundlauginni. Heimasíða Gullmóts KR 2011

Búnaður:
Sundföt, gleraugu, sundhetta
Handklæði 2-3
Skór til að vera í á bakkanum
Hlýir sokkar
Óðinsgalli, bolur
Vatnsbrúsi

Til gistingar í skóla:
Vindsæng/dýna
Sæng/svefnpoki/
Koddi/lak
Náttföt
Tannbursti og tannkrem

Nesti - peningur:
Sundmenn þurfa að hafa með sér nesti fyrsta daginn en fá kvöldmat í skólanum strax fyrsta kvöldið. Þá getur verið gott að eiga eitthvað hollt og gott til að narta í yfir helgina, t.d. gróft kex og ávaxtasafa. Sælgæti og sætabrauð er stranglega bannað. Þá þurfa sundmenn að hafa pening meðferðis til að kaupa sér næringu áður en lagt verður af stað heim á sunnudag, 1.000-1.500 kr. Fararstjórar geta geymt pening.

Fararstjórar:
Bjarni Pálsson (Páll Rúnar framtíðarhóp) GSM: 822-4021
Þóra Ester (Kristín Ása afrekshóp) GSM: 847-6250
Elsa María  (Kári og Hildur afrekshóp) GSM: 867-9257

Þjálfarar:
Sigfríð, Vlad, Karen

Kostnaður:
Við notum Samherjastyrkinn til að niðurgreiða þetta mót verulega, eða um 12.000 kr á barn. Heildarkostnaður á mann er 20.500 þúsund kr. (sjá sundurliðun hér fyrir neðan) þannig að teknu tilliti til niðurgreiðslu þarf að borga 8.500 kr á barn. Upp í það getur hver og einn nýtt það sem hann kann að eiga úr einstaklingsfjáröflunum. Upplýsingar um inneign gefur Halla Björk starfsmaður Óðins, odinn@odinn.is Leggist inn á reikning Óðins 1145-26-80180 kt. 580180-0519 fyrir brottför

Sundurliðun kostnaðar pr. sundmann:

Matur og gisting 9.000 (keypt af KR)
Rúta 4.500
Bakkanesti 1.000
Greinar 2.500
Farstjórn+þjálfaarar 3.500
Samtals: 20.500

Ath.  - Mikilvægt:
Ef barn ætlar ekki með rútunni eða gistir ekki í skólanum þarf að koma skilaboðum um það á odinn@odinn.is í síðasta lagi um hádegi þriðjudaginn 8. febrúar. Að öðrum kosti þarf að greiða fullt gjald.

Fylgist áfram með hér á síðunni því nánari upplýsingar koma inn.