Greiðsla æfingagjalda og sala á fatnaði á afslætti

Greiðsla æfingagj. og sala á fatnaði á afslætti

Mánudaginn 20. okt kl. 18:30 - 19:30 ætlum við að vera á skrifstofu Sundfélagsins og aðstoða þá foreldra sem vilja aðstoð við skráningu inn í Nori kerfið til þess að ganga frá greiðslum æfingagjalda. Nú hafa um 40% barnanna verið skráð inn og því enn töluverður fjöldi sem á eftir að gera það.

Á sama tíma verðum við með sölu á öllum vörunum okkar. Stuttbuxur og stuttermabolir verða á sérstökum afslætti eða 1000 kr stk.

Minnsta stærðin af bómullarhettupeysunum (7-8 ára) verður einnig seld með afslætti eða á 2000 kr

ATH. við eigum ekki posa og þarf því að koma með pening.

Fyrir þá sem ekki vita hvar skrifstofan er þá er hún upp á 2. hæð í Íþróttahúsinu í Laugargötu (hliðin á andapollinum/ská f. neðan sundlaugina)

Kveðja,
Stjórnin