Góð frammistaða Óðins á Íslandsmeistaramóti í 50m laug
Íslandsmeistaramót í 50m laug 2026 fór fram í Ásvallarlaug í Hafnarfirði helgina 27.- 29. mars og var Sundfélagið Óðinn með 16 keppendur skráða til leiks. Vegna veðurs þurfti hópurinn að ferðast degi fyrr en auka dagur í Hafnarfirði var vel nýttur til æfinga í keppnislauginni.
Eftirtaldir sundmenn Óðins unnu til verðlauna á mótinu:
Benedikt Már Þorvaldsson vann tvö bronsverðlaun í bringusundi í flokki 18 ára og yngri, í 100m og 200m bringusundi.
Jón Ingi Einarsson vann til fimm verðlauna í flokki 18 ára og yngri: 2. sæti í 50m baksundi og 50m flugsundi og 3. sæti í 50m skriðsundi, 200m fjórsundi og 400m fjórsundi. Í 50m skriðsundi setti hann Akureyrarmet í flokki 15–17 ára.
Með þessum árangri hefur Jón Ingi verið valinn í framtíðarhóp landsliðsins og mun keppa í Taastrup í Danmörku í maí.
Örn Kató Arnarsson vann tvö silfurverðlauna í opnum flokki í 800m og 1500m skriðsundi. Í 800m skriðsundi bætti hann eigið Akureyrarmet og setti jafnframt nýtt Akureyrarmet í 1500m skriðsundi.
Björn Elvar Austfjörð komst inn í framtíðarhóp SSÍ með góðum árangri á mótinu.
Sundmenn Óðins í úrslitum:
Alexander Reid McCormick – 200m, 800m og 1500m skriðsund
Benedikt Már Þorvaldsson – 100m og 200m bringusund
Friðrika Sif Ágústsdóttir – 200m flugsund, 800m og 1500m skriðsund
Ísabella Jóhannsdóttir – 50m og 200m bringusund
Jón Ingi Einarsson – 50m skriðsund, 200m og 400m fjórsund
Magni Rafn Ragnarsson – 50m og 200m bringusund
Örn Kató Arnarsson – 100m bringusund, 400m, 800m og 1500m skriðsund
Frábært mót er að baki þar sem margir persónulegir sigrar unnust. Við þökkum þjálfara og fararstjórn fyrir gott utanumhald á mótinu.
Hægt að skoða fleiri myndir af mótinu með því að smella hér.
Allar myndir eru teknar af Hákoni Ágústssyni.

Benedikt Már Þorvaldsson með 2 brons í bringusundi.

Örn Kató Arnarsson vann tvö silfurverðlaun á mótinu ásamt því að bæta tvö Akureyrarmet.

Björn Elvar Austfjörð komst inn í framtíðarhóp á vegum SSÍ.