Glæsilegt lokahóf í Sjallanum

AMÍ mun ljúka á sunnudagskvöld með glæsilegu lokahófi í Sjallanum. Þar verður farið yfir afrek mótsins og snæddur veislumatur að hætti matreiðslumeistara Greifans.

GreifinnMiði á lokahófið er innifalinn í AMÍ-pakkanum en einnig geta foreldrar og aðrir keypt sérstaka miða á lokahófið. Verðið er aðeins 4.000 kr og verða miðar seldir í AMÍ-sjoppunni. Matseðillinn er hér að neðan og ekki laust við að maður fái strax vatn í munninn:)

Aðalréttir:

Kjúklingabringa krydduð blóðbergi og hvítlauk - rjómasveppasósa
Lambafillet með Dijon-hunangshjúp - rauðvínssósa

Eftirréttur:
Súkkulaðikaka - Heimagerð, hnausþykk súkkulaðikaka með  ávaxtasalati, rjómatoppi og súkkulaðihjúp.

Herlegheitunum verður svo skolað niður með gosi frá Vífilfelli.