Fyrirlestur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.

Mánudaginn 17. febrúar kl.12:10 verður hádegisfundur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal þar sem Dr. Anna Hafsteinsson Östenberg og Vésteinn Hafsteinsson afreksþjálfari munu ræða þau ólíku sjónarhorn sem upp geta komið á milli þjálfara afreksmannsins annars vegar og sjúkraþjálfarans hins vegar þegar íþróttamaðurinn er að fara aftur af stað eftir meiðsli. Hvenær er hann tilbúinn til æfinga eða keppni? Hver á að ráða, þjálfarinn eða sjúkraþjálfarinn? Fyrirlesturinn fer bæði fram á ensku og íslensku, er öllum opinn og þátttaka ókeypis. Skráning fer fram á skraning@isi.is

Endilega áframsendið til ykkar aðildarfélaga

 

Kær kveðja,

Ragnhildur Skúladóttir

Sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs