Fundur með frambjóðendum

Stjórn Sundfélagsins Óðins boðaði frambjóðendur allra flokka til bæjarstjórnar á Akureyri á kynningarfund þann 2. maí sl. Tilefni fundarins var að sýna frambjóðendum við hvaða aðstöðu eða aðstöðuleysi Sundfélagið býr með tilliti til æfinga, keppni og félagsstarfs.  Stjórn Óðins var ánægð með mætinguna á fundinn en frambjóðendur frá öllum flokkum nema Miðflokksins og Kattarframboðsins mættu.   Engin lýsing til

 

Kynningarfundurinn hófst á því að Finnur Víkingsson formaður Óðins bauð gestum út á sundlaugarbakka og sýndi þeim aðstöðuna þar. Hann útskýrði fyrir  frambjóðendum  nauðsyn þess að ráðist verði   í byggingu 50 metra yfirbyggðar sundlaugar á Akureyri. 

 

Engin lýsing til

Því næst var frambjóðendum boðið niður í kjallara sundlaugarinnar. Sundfélagið hefur óskað eftir því rými fyrir bráðabirgða þrekaðstöðu félagsins en félagið hefur enga þrekaðstöðu eða aðstöðu til bakkaupphitunar. Næst var hópnum boðið í fundarsalinn í Laugargötu en þeirri aðstöðu deilir Óðinn með Skíðafélagi Akureyrar. 

Á fundinum var umræða um mikilvægi þess að hefja undirbúning að byggingu 50 m yfirbyggðar laugar sem fyrst.  Það tekur tíma að undirbúa verkið enda að mörgu að hyggja t.d. þarf að ákvarða staðsetningu, hugsanlega breyta deiliskipulagi og hanna mannvirkið.  Finnur afhenti frambjóðendum yfirlitsteikningu af sundlaugarsvæðinu þar sem búið var að teikna inn 50 metra yfirbyggða sundlaug á svæðinu vestan við World Class ásamt stuttri samantekt þar sem farið er yfir nauðsyn þess að 50m æfinga- og keppnislaug verði byggð sem allra fyrst á Akureyri. 

Stjórn Óðins benti á mikilvægi þess að fara eftir þeim samþykktum sem liggja fyrir um röð á uppbygginu íþróttamannvirkja á Akureyri. Það er mikilvægt að ekki séu teknar geðþóttaákvarðanir og verkefni færð fram fyrir önnur vegna þess að einhver félög hafa hátt og heimta uppbyggingu strax. Í þeirri áætlun sem unnin var fyrir nokkrum árum er bygging yfirbyggðar 50m sundlaugar í 7. sæti. Þegar hefur verið ráðist í þær framkvæmdir sem voru í 1. og 2. sæti og sú í þriðja sæti er hafin. Það liggur fyrir að næst verði farið í verkefni hjá Golfklúbbnum og Skíðafélaginu en síðan er röðin komin að Sundfélaginu Óðni. Engin lýsing til

Sundfélagið Óðinn hefur beðið eftir 50 m yfirbyggðri laug síðan 1969 en þá var fyrsta beiðni félagsins lögð inn til  Akureyrarbæjar.  Það væri því tilvalið fyrir Akureyrarbæ að skrifa undir samning við Óðinn um byggingu 50m innilaugar núna á haustdögum þar sem félagið á 60 ára afmæli þann 12. september.

Engin lýsing tilEngin lýsing til


Engin lýsing tilEngin lýsing tilEngin lýsing til

  


Engin lýsing til