Frístundastyrkur á Akureyri hækkar um 20%

Frá árinu 2006 hefur Akureyrarbær veitt styrk til allra barna og unglinga á Akureyri til niðurgreiðslu þátttökugjalda hjá íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum á Akureyri. Styrkurinn tekur gildi árið sem barnið verður 6 ára og fellur úr gildi árið sem unglingurinn verður 18 ára.

Til að nota frístundastyrkinn skal fara inn á heimasíðu þess íþrótta-, tómstunda- og/eða æskulýðsfélags þar sem skrá á barn. Þar er hlekkur inn á skráningarsíðu þar sem foreldrar skrá iðkendur. Í skráningar- og greiðsluferlinu geta foreldrar valið um að nota frístundastyrkinn frá Akureyrarbæ.

Íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögin veita aðstoð og upplýsingar um skráningu, greiðslu og notkun frístundastyrks hjá hverju félagi fyrir sig.

  • Árið 2017 gildir styrkurinn fyrir börn fædd árið 2000 til og með 2011
  • Frístundastyrkurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember ár hvert

Upplýsingar er einnig að finna á eftirfarandi vefslóð, www.akureyriaidi.is

Nánari upplýsingar veitir Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála, ellert@akureyri.is.