Fréttir af ferðalöngum á NMU

Fréttir af okkur hérna í Færeyjum.  Ferðalagið gekk vel þó svo að flugið hafi verið knappt frá Kaupmannahöfn yfir til Þórshafnar þá náðum við með því að hlaupa.  Hverjir voru fyrstir í vélina af öllu liðinu?  Að sjálfsögðu við Akureyringarnir.  Sveitt og rjóð eftir að hafa hlaupið allan flugvöllinn endanna á milli á mettíma.

Við gistum á flottu hóteli hérna í hæðunum fyrir ofan bæinn.  Það er snjóstormur og frost svo að það er nánast eins og við séum heima.

Æfingar hafa gengið vel og öll liðin eru nú komin saman á hótelið.  Maturinn er mjög góður og virkilega vel tekið á móti okkur.

Laugin er lítil og þröng.  Það verður bein útsending af öllun mótinu svo að það er bara að fylgjast með okkar fólki.  Stelpurnar eru vel stemmdar og líður bara vel.  Spenntar að takast á við þetta verkefni.

Bein útsending á mótinu er á livetiming.fi.

Sundkveðjur frá Þórhöfn í Færeyjum.

NMU hópurinn okkar.