Fræðslufyrirlestur með Bjarna Fritzsyni

Strax eftir æfingu afrekshóps á föstudaginn, eru krakkarnir boðaðir á fræðslufyrirlestur í slanum okkar í Laugargötunni. Fyrirlesturinn hefst kl. 19. Þar mun Bjarni Fritzson, handknattleiksmaður með Akureyri handboltafélagi, miðla af reynslu sinni og fjalla um ýmislegt sem lýtur að því að vera íþróttamaður. Bjarni lék sem atvinnumaður erlendis um árabil og á að baki tæplega 40 landsleiki fyrir Ísland. Fyrirlesturinn er á vegum foreldraráðs sem einnig mun sjá um að krakkarnir fái næringu áður en fyrirlesturinn hefst.