Formannsskipti hjá Óðni

Börkur Þór Ottósson, nýr formaður Óðins.
Börkur Þór Ottósson, nýr formaður Óðins.

Aðalfundur Óðins var haldinn í kvöld. Dagskrá var samkvæmt lögum félagsins, svo sem skýrsla stjórnar, reikningar og stjórnarkjör. Nýr formaður er Börkur Þór Ottósson sem tók við af Halldóri Arinbjarnarsyni.

Nýr inn í stjórn kom Bjarni Pálsson og aðrir í fráfarandi stjórn gáfu kost á sér áfram, þau Halla B. Halldórsdóttir, Sif Sverrisdóttir, Halla B. Garðarsdóttir, Lísa Björk Gunnarsdóttir og Arnar Snorrason. Ný stjórn á eftir að hittast og skipta með sér verkum.