Foreldrafundur fyrir AMÍ

Ágætu foreldrar og forráðamenn sundgarpa Óðins

Nú líður að Aldursflokkameistaramóti Íslands 2013 (AMÍ), sem sundfélagið Óðinn er þess heiðurs aðnjótandi að halda þetta árið.

Mótið sem hefst þann 28. júní næstkomandi og stendur til 30. júní, er með breyttu sniði frá fyrri árum þar sem núna eru yngri keppendur en áður og sundmenn eldri en 15 ára keppa á sér aldursflokkamóti á öðrum tíma

Að mörgu ber að hyggja þegar mót af þessari stærðargráðu er haldið og er sundfélagið í þörf fyrir gott fólk til að taka að sér ýmis störf í kringum mótið svo sem þrif, eldamennsku og annað.

Þar sem þetta mót er aðal fjáröflun félagsins er mikilvægt að allir foreldrar og forráðamenn leggi hönd á plóg er  við skráum á vaktir.  Líkt og undanfarin ár mun hluti ágóða mótsins vera nýttur í ferðasjóð og fer hlutur hvers og eins eftir framlagi aðstandanda.

Miðvikudaginn  5. júní  kl: 19:30  verður haldin fundur á Teríunni  í Íþróttahöllinni þar sem kynnt verða þau störf sem í boði verða og fólk getur skráð sig á vaktir.

Bestu kveðjur
Heiðar Ólason
Formaður Óðins