Fjöldi bætinga hjá Sundfélaginu Óðni á VIT-HIT leikunum

Boðsundsveit Óðins með gull.
Boðsundsveit Óðins með gull.

VIT-HIT leikar fóru fram á Akranesi helgina 29.–31. maí síðastliðinn þar sem Sundfélagið Óðinn átti 45 keppendur skráða til leiks af alls 397 keppendum. Sundfólkið okkar stóðu sig afar vel og stemningin í hópnum var frábær alla helgina.

Um helgina náðu enn fleiri sundmenn frá Óðni lágmörkum á AMÍ en Íslandsmeistaramót aldursflokka er næsta stóra verkefni félagsins. Langflestir keppendur bættu tíma sína á mótinu og greinilegt að innan félagsins eru margir efnilegir sundmenn sem verður spennandi að fylgjast með á komandi árum.

Sundfélagið Óðinn hafnaði í 3. sæti yfir stigahæstu lið mótsins og átti meðal annars sigurlið í boðsundi.

Jón Ingi Einarsson varð stigahæsti sundmaður mótsins og sló jafnframt nýtt Akureyrarmet í 100m fjórsundi í flokki 15–17 ára. Metið hafði staðið frá árinu 2007.

Að venju þökkum við fararstjórum, þjálfurum og Sundfélagi Akraness kærlega fyrir frábæra helgi.

 

Myndir og nánari umfjöllun um mótið má sjá á heimasíðu Sundfélags Akraness eða með því að smella hér.

Jón Ingi vann allar sínar greinar á mótinu og varð stigahæsti sundmaðurinn á VIT-HIT leikunum 2026.