Extramót SH 1-3 nóvember.

Extramót SH 1-3 nóvember.

17 keppendur úr Afreks og Úrvalshópi,tveir fararstjórar og einn þjálfari lögðu af stað á föstudaginn til Hafnarfjarðar að taka þátt á Extramótir SH. Keppni hófst á laugardagsmorgni. Ágætis árangur náðist um helgina.  Mótið sé mjög vel skipulagt og gott úrval á greinum.  Einnig eru Hafnfirðingar eru höfðingjar heim að sækja.

Góðar bætingar hjá yngri sundmönnum og eldri sundmenn að synda vel miða við hvar þau eru í æfingaprógramminu.

Við erum sátt við árangurinn um helgina og krakkarnir unnu til margra verðlauna en þó skiptir mestu persónulegur sigur.

Takk fyrir helgina krakkar.

Kv, Ragga og fararstjórar.