Gullmót KR í Laugardalslaug 8-10.febrúar.

Gullmót KR 2012 fer fram í Laugardalslaug 8-10. febrúar í 50 m braut. Á þetta mót fara sundmenn Óðins í Afrekshópi, Úrvalshópi, Framtíðarhópi og Hákörlum. Mótið er opið öllum aldursflokkum þar sem keppt er i 84 greinum í 6 mótshlutum, auk KR Super Challenge á laugardagskvöldi, þar sem keppt er í 50 m flugsundi.

Ferðatilhögun
Farið verður með rútu frá planinu sunnan við Íþróttahöllina stundvíslega kl. 9 að morgni föstudagsins 8. febrúar og til baka á sunnudag að móti loknu um kl 18:00.

Gisting og matur er í Laugalækjarskóla rétt hjá sundlauginni. Heimasíða Gullmóts KR 2013

Skráningar Óðins

Búnaður:
Sundföt, gleraugu, sundhetta
Handklæði 2-3
Skór til að vera í á bakkanum
Hlýir sokkar
Óðinsgalli, bolur
Vatnsbrúsi

Til gistingar í skóla:
Vindsæng/dýna
Sæng/svefnpoki
Koddi/lak
Náttföt
Tannbursti og tannkrem

Nesti - peningur:
Sundmenn þurfa að hafa með sér nesti fyrsta daginn en fá kvöldmat í skólanum strax fyrsta kvöldið. Þá getur verið gott að eiga eitthvað hollt og gott til að narta í yfir helgina, t.d. gróft kex og ávaxtasafa. Sælgæti og sætabrauð er stranglega bannað. Þá þurfa sundmenn að hafa pening meðferðis til að kaupa sér næringu áður en lagt verður af stað heim á sunnudag, 1.500-2000 kr. Fararstjórar geta geymt pening. Stoppað verður á leiðinni og t.d. pantað pizzuhlaðborð fyrir alla sem vilja.

Fararstjórar:
Lísa Björk (Snævar Atli Úrvalshóp) GSM: 865 8953
Þóra Ester (Kristín Ása afrekshóp) GSM: 847 6250
Selma (Ólöf Maren í Úrvalshóp) GSM: 892 4829
Hildur (Þura í Framtíðarhóp) GSM: 892 4181

Þjálfarar:
Ragnheiður Runólfsdóttir og Pétur Birgisson

Kostnaður:
Heildarkostnaður á mann er 17.500 þúsund kr. (sjá sundurliðun hér fyrir neðan). Upp í það getur hver og einn nýtt það sem hann kann að eiga úr einstaklingsfjáröflunum. Upplýsingar um inneign gefur fjáröflunarnefnd sundfélagsins, fjaroflun@odinn.is. Leggist inn á reikning Óðins 0566-26-80180 kt. 580180-0519 fyrir brottför.

Sundurliðun kostnaðar pr. sundmann:

Matur og gisting 9.500 (keypt af KR)
Rúta 6.500
Bakkanesti 1000
Greinar 2.500
Farstjórn+þjálfarar 2.000
Samtals: 21.500
Niðurgreitt um 4000 kr. Heildarkostnaður pr. keppanda er því 17.500.

Mikilvægt:
Þeir sem ekki ætla að nýta sér rútu greiða 11.000 kr. Skilaboð um það þarf að berast til gjaldkera í síðasta lagi þriðjudaginn 5 febrúar.  Að öðrum kosti þarf að greiða fullt gjald.
Ef barn ætlar ekki með rútunni  eða gistir ekki í skólanum þarf að koma skilaboðum um það á odinn@odinn.is.


Áríðandi:
Ef barn er með fæðuofnæmi, annarskonar ofnæmi eða er á lyfjum er mikilvægt að foreldrar setji sig í samband við fararstjóra.

Fylgist áfram með hér á síðunni því nánari upplýsingar koma inn.