Akranesleikar 1-3 júní nk.

Akranesleikar Sundfélags Akraness verða haldnir 1. – 3. júní nk.

Mótið er fyrir hörfunga og uppúr. Mikið gaman, mikið fjör.

Skráningar Óðins

Kostnaður 15.000 kr og er þetta mót greitt niður með Samherjastyrknum og sameiginlegum fjáröflunum.
Leggist inn á reikning Óðins Reikningsnr.: 0566-26-80180. Kennitala: 580180-0519 og setjið nafn barns sem skýringu.

Þá hafi allir með 1.500 kr. fyrir mat á heimleiðinni. Fararstjórar ákveða hvar verður stoppað til að borða.

Ferðatilhögun:
Farið verður með rútu fram og til baka og gist saman í Grundaskóla við hliðina á sundlauginni. Lagt verður af stað frá planinu sunnan við Íþróttahöllina og er brottför áætluð kl 09:00 á föstudagsmorguninn.

Allur matur á mótinu verður einnig framreiddur í Grundaskóla.

Mikilvægt: Ef einhverjir krakkar ætla sér ekki að nýta rútuna þá þarf að vera búið að láta Höllu starfsmann Óðins (netfang: odinn@odinn.is) vita síðasta lagi þriðjudagskvöldið 29. maí, annars þarf að borga fyrir sætið. Einnig þarf að láta vita ef einhver er ekki í fæði.
Fararstjórar:
Eva Dögg gsm 868-8897 (Aron Bjarki Úrvalshópi)
Bryndís Davíðsdóttir, gsm 697 5173 (Embla Afrekshópi)
Hildur Friðriksdóttir gsm 892 4181 (Þura Höfrungum)
Börkur Ottósson, gsm 864-8373 (Nanna Björk Afrekshópi)

 

Búnaður:
Þegar við ferðumst saman þá eru allir í Óðinsgöllunum eða a.m.k. peysunni.
Búnaður til gistingar í skóla er dýna, sæng, koddi, lak, náttföt, tannbursti/tannkrem og nesti (ávexti, brauð, ávaxtasafi).
Mótið er í útilaug og alla veðra von þótt nú sé sumar. Á bakkanum er best að hafa pörku eða hlýja og góða úlpu, góða peysu innanundir, hlýjar buxur, ullarsokka, vettlinga, húfu og góða skó.
Einnig hafa vatnsbrúsa og 2-3 handklæði. Allur fatnaður og annar búnaður þarf að vera vel merktur. Það gæti líka orðið glaða sólskin þannig að sólarvörn þarf að vera með í för.
Ef sundmenn eru að taka lyf að staðaldri ber að láta fararstjóra vita, tilkynna um lyf sem sundmenn hafa meðferðis.
Hér má sjá heimasíðu mótsins