Dómaranámskeið

Áætlað er að vera með dómaranámskeið föstudaginn 20. maí kl 20:00, námskeiðið verður haldið í Íþróttahöllinni á Akureyri. Bóklegi hlutinn er kláraður á föstudeginum og í framhaldi er hægt að taka á verklegan hluta á Lionsmóti Ránar deginum eftir. Námskeiðið er einn bóklegur hluti sem tekur uþb. 2 1/2klst, þar sem farið er yfir sundreglur og fleira sem við kemur sundmótum og svo þarf að starfa tvo mótshluta í verklegri þjálfun til að verða dómaranemi. Til að verða almennur dómari þarf safna 40 punktum á 12 mánaðar tímabili, veittur er auka tíma til að safna punktum þar sem að við höfum ekki jafn góðan aðgang að mótum og aðrir fyrir sunnan.

Við skráningu á námskeiðið er óskað eftir upplýsingum um nafn, kennitölu, gsm og hvaða félag viðkomandi tengist. Skila þarf inn skráningu á dómaranámskeið á netfangið: domari@odinn.is

Fyrir almennt mót eins og t.d. Lionsmót Ránar, ÍRBmót, Akranesleikarnir og Sprengimót er hægt að vinna sér inn 3 punkta fyrir hvern hluta og 5 punkta fyrir SSÍ mót og alþjóðleg mót eins og t.d AMÍ, ÍM, Gullmót KR og RIG. Þetta er mjög skemmtileg vinna og gefur foreldrum einstakt tækifæri til að nálgast íþróttina á einstakan hátt og tengjast börnunum í leiðinni. Aðrir dómarar eru velkomnir á námskeiðið til að fá smá upprifjun og punkta í leiðinni.

Með von um frábæra þáttöku, 

Katrín Sif, yfirdómaranemi Óðins.