Dagur 1 á ÍM50

Allt gengur ljómandi vel hjá stelpunum okkar á ÍM 50. Þær áttu úrslitasundið í 100 flug. Bryndís Rún var í fyrsta sæti, nafna hennar Bolladóttir í öðru sæti  og Elín Kata í þriðja sæti.
Bryndís Rún var með tvö gull í 100 flug.
Boðsundsveitin vann silfur í 4x200 skrið. 95% bætingar og allir að standa sig hrikalega vel samkvæmt yfirþjálfara. Hún er svo stolt af stelpunum sínum og þær eru langflottasta liðið.