Bryndís til Noregs

Eins og fram kom á uppskeruhátíð Óðins á dögunum hefur Bryndís Rún Hansen, nýkjörinn sundmaður Akureyrar, nú haft vistaskipti. Hún er flutt til Bergen í Noregi þar sem hún sest á skólabekk, auk þess að einbeita sér að sundinu.

Bryndís hefur æft með Óðni frá unga aldri og verið sterkasti sundmaður félagsins undanfarin ár. Hennar verður því sárt saknað úr afrekshópnum. Bryndísi fylgja til Noregs góðar kveðjur frá öllum í Óðni og það er nokkur huggun harmi gegn að þrátt fyrir flutninga stefnir Bryndís engu að síður á að keppa áfram undir nafni Óðins á mótum hér heima og fyrir Íslands hönd.