Bryndís Rún varð þriðja í kjörinu til Íþróttamanns Akureyrar fyrir árið 2015 í dag.

Bryndís Rún varð þriðja í kjörinu til Íþróttamanns Akureyrar fyrir árið 2015 í dag. Ingi og Ásta, foreldrar Byndísar, voru við athöfnina og tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Bryndísar sem er stödd í Tyrklandi við æfingar. Til hamingju, Bryndís Rún! 
Viktor Samúelsson kraftlyftingamaður er Íþróttamaður Akureyrar 2015 og óskum við honum einnig til hamingju.