Bryndís Rún kjörin Íþróttamaður Akureyrar 2011

Bryndís Rún Hansen er íþróttamaður Akureyrar fyrir árið 2011, þriðja árið í röð, en kjörinu var lýst á Hótel KEA í kvöld. Þetta er glæsilegur árangur og verðskuldaður eftir frábært ár, m.a. fimm Íslandsmet og fimm Íslandsmeistaratitla.

Að kjöri íþróttamanns Akureyrar sendur stjórn ÍBA og fulltrúar fjölmiðla á Akureyri. Í öðru sæti varð handknattleiksmaðurinn Oddur Gretarsson og júdókonan Helga Hansdóttir þriðja.

Nafnbótinni íþróttamaður Akureyrar fylgir glæsilegur farandbikar sem varðveittur hefur verið í Sundlaug Akureyrar undanfarin ár, þar sem gestir og gangandi geta virt hann fyrir sér.