Bryndís Rún að gera það gott á móti rétt fyrir jól.

Bryndís Rún synti um síðustu helgi á móti sem skólinn hennar hélt.

Bryndís stóð sig frábærlega og setti 7 met, 3 voru sett í einstaklingsgreinum og 4 í boðsundum.  Bryndís vann 50 yarda og 100 yarda skriðsund og einnig 100 yarda flugsund.

Hún setti mótsmet í þessum greinum og er fjórða hröðust í fylkinu í 50 yarda skriðsundi og 100 yarda flugsundi.  Hún er önnur hröðust í 100 yarda skriðsundi.  Frábær helgi hjá Bryndísi .

Við óskum henni innilega til hamingju og fylgjumst spennt með frammgöngu hennar héðan frá Akureyri.

Meðfylgjandi er linkur á grein sem skrifuð var um árangur okkar konu.  Við erum stollt af þessari frábæru íþróttakonu.

http://nsusharks.com/awards.aspx?aow=323