Bryndís áfram með ÍSÍ-styrk

Bryndís Rún Hansen er meðal tíu sundmanna sem fá úthlutun úr Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna, sem er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, fyrir árið 2011. Styrkurinn nemur 200 þúsund krónum og er þetta þriðja árið í röð sem Bryndís hlýtur styrkinn.

Umsóknir voru sem fyrr mun fleiri en sjóðurinn gat orðið við. Sundmennirnir sex fengu til samans 1.450 þúsund en auk Bryndísar voru það:

- Eygló Ósk Gústafsdóttir kr. 200.000,-
- Ingibjörg Kristín Jónsdóttir kr. 200.000,-
- Anton Sveinn McKee kr. 150.000,-
- Hrafn Traustason kr. 150.000,-
- Kolbeinn Hrafnkelsson kr. 150.000,-
- Kristinn Þórarinsson kr. 100.000,-
- Inga Elín Cryer kr. 100.000,-
- Njáll Þrastarson kr. 100.000,-
- Salome Jónsdóttir kr. 100.000,-