Breytingar í stjórn Óðins

Kristjana Pálsdóttir Margrétardóttir var kjörin formaður á aðalfundi Óðins þann 8. apríl 2025. Vegna stöðu hennar sem yfirþjálfari félagsins var samþykkt að varaformaður Einar Már Ríkarðsson gegndi hlutverki starfandi formanns út núverandi sundár.

Vegna persónulegra ástæðna hefur Kristjana ákveðið að ganga úr stjórn Óðins. Stjórn Óðins samþykkti að Ásta Birgisdóttir taki við sem formaður frá og með nýju sundári.

Stjórn Óðins vill þakka Kristjönu kærlega fyrir sitt framlag til félagsins og við óskum henni alls hins besta.