Björn Elvar og Jón Ingi í íslenska hópnum gegn Færeyjum

Björn Elvar og Jón Ingi framtíðarhópsverkefni SSÍ

Um síðustu helgi fór fram vináttu- og landsliðsverkefni Íslands og Færeyja í sundi í Reykjanesbæ. Tuttugu efnilegir sundmenn úr Framtíðarhópi Sundsambands Íslands tóku þar á móti jafnöldrum sínum frá Færeyjum og áttu saman viðburðaríka helgi með æfingum, keppni og samveru.

Óðinn átti tvo fulltrúa í íslenska hópnum Björn Elvar Austfjörð og Jón Inga Einarsson og erum við afar stolt af okkar mönnum og þátttöku þeirra í verkefninu.

Hóparnir æfðu saman yfir helgina og kepptu á sundmóti í Vatnaveröld á laugardeginum þar sem íslenska liðið hafði betur. Verkefnið snerist þó ekki síður um að efla tengsl sundfólks milli landanna og skapa skemmtilega og lærdómsríka upplifun fyrir þátttakendur.

Stefnt er að því að samstarfsverkefni Íslands og Færeyja verði árlegur viðburður í uppbyggingarstarfi beggja landa.

Til hamingju Björn Elvar og Jón Ingi með þátttökuna og frábæra helgi!

 

Pistill og mynd tekin af heimasíðu SSÍ - https://www.sundsamband.is/