Bikarkeppni SSÍ 2011 lokið.

Þá hafa Óðinsliðin lokið keppni á Bikar þetta árið.  Strákarnir unnu 2. deildina og stelpurnar héldu sínu sæti í fyrstu deild.

Karlalið Óðins var mjög nærri því að ná sæti í fyrstu deild, aðeins munaði um 150 stigum á þeim og KR-ingum, sem urðu í neðsta sæti í fyrstu deild. Kvennalið Óðins náði hinsvegar 5. sæti í fyrstu deild og hélt þar með sínu sæti í deildinni með glæsibrag.

Nánari fréttir af bikarkeppninni koma síðar.