AMÍ verður ekki haldið á Akureyri í ár

Í tilkynningu frá Sundsambandi Íslands (SSÍ) miðvikudaginn 6. maí sl. kom fram að AMÍ verður haldið af SH í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Sú ákvörðun var tekin eftir samskipti formanns Sundfélagsins Óðins við SSÍ mánudaginn 4. maí sl.
 
Stjórn Sundfélagsins Óðins hafði rætt sín á milli ákveðnar áskoranir við framkvæmd mótsins á Akureyri vegna COVID-19 faraldursins. Áhyggjur formanns leiddu til þess að hann gaf mótið frá sér. Var það gert án samráðs við aðra stjórnarmeðlimi sundfélagsins og AMÍ nefnd félagsins. Í kjölfarið steig formaður sundfélagsins til hliðar af þessum sökum og hefur látið af öllum störfum fyrir Sundfélagið Óðinn.
 
Þrátt fyrir að stjórn Óðins hæfi strax viðræður við bæði SSÍ og SH um að endurheimta mótið til Akureyrar tókst ekki að fá ákvörðuninni breytt.
 
Þessi niðurstaða er gríðarleg vonbrigði fyrir sundfélagið Óðinn.