AMÍ 28-30 júní 2013.

Helgina 28-30 júní verður AMÍ (aldursflokkameistaramót) haldið á Akureyri. Það liggur fyrir að þurfi að manna margar vaktir bæði í eldhúsi, klefum og margt annað. Nú biðlum við til ykkar duglegu foreldrar að hafa það í huga þegar að þessu kemur að taka jákvætt í þetta verkefni. Við hjá sundfélaginu erum stolt af okkar foreldrahópi og vitum að það kemur engin að lokuðum dyrum hjá ykkur þegar eitthvað vantar.
Við stefnum hátt og ætlum að gera AMÍ að flottu móti með vel mönnuðum vöktum af foreldrum sundfélagsins. Skemmtileg vinna í góðra manna hópi gerir lífið enn skemmtilegra.