Sprengimót Óðins fór fram um liðna helgi og það var heldur betur líf og fjör. Í ár voru keppendur 126 frá sjö liðum og þökkum við þeim kærlega fyrir að hafa lagt á sig ferðina hingað til Akureyrar og tekið þátt í að gera Sprengimótið eftirminnilegt.
Sprengimótið markar oft upphaf sundtímabilsins hjá mörgum keppendum og er frábært tækifæri til að koma sér aftur í gírinn eftir sumarfrí. Það var því gaman að sjá sundfólkið aftur mætt til keppni og nóg um að vera í lauginni alla helgina.
Mótið gekk mjög vel og margt var um manninn. Smá væta var á okkur á laugardeginum en sólin fór svo að skína á sunnudaginn, eins og við má búast hér á Norðurlandi. Góð stemning var á mótinu og gaman að sjá bæði keppendur og áhorfendur fjölmenna í laugina.
Stelpurnar okkar gerðu sér lítið fyrir og bættu Akureyrarmetið í 4x50 m fjórsundi kvenna. Sveitina skipuðu Nanna Karen Arnarsdóttir, Adríana Marín Einarsdóttir, Hrafney Eiríksdóttir og Alexa Dís Egilsdóttir. Við óskum þeim innilega til hamingju með frábæran árangur, greinilega öflugar stelpur þar á ferð!
Við þökkum öllum sem komu að mótinu með einum eða öðrum hætti, iðkendum, þjálfurum, gestum, áhorfendum, sjálfboðaliðum og öllum hinum sem lögðu sitt af mörkum til að mótið gæti farið fram.
Takk fyrir helgina og vonandi sjáum til alla á Sprengimótinu 2027!