Aðalfundur Óðins haldinn rafrænt 11. maí nk.

Aðalfundur Sundfélagsins Óðins verður haldinn rafrænt þriðjudaginn 11. maí kl. 19:30. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf s.s. skýrsla formanns, ársreikningur, kjör stjórnar og önnur mál.

Stjórn sundfélagsins óskar eftir þremur fulltrúum í foreldraráð félagsins sem gegnir stóru hlutverki í starfi þess. Fyrirspurnir, framboð og tilnefningar til stjórnarsetu skulu berast á netfangið formadur@odinn.is.

Reglur félagsins eru aðgengilegar hér en tillögur að lögum og lagabreytingum skulu berast á netfangið formadur@odinn.is sem fyrst og munu þær tillögur sem berast verða birtar á heimasíðu félagsins fyrir aðalfund.