Aðalfundur Sundfélagsins fer fram mánudaginn 23.mars á efri hæð Íþróttahallarinnar (Teríunni) kl. 20:00.
Á dagskrá fundarins eru venjubundin aðalfundarstörf s.s. skýrsla stjórnar, ársreikningur, kjör stjórnar og önnur mál.
Núverandi stjórn Óðins gefur öll kost á sér til starfa áfram.
Fyrirspurnir, framboð og tilnefningar til stjórnarsetu skulu berast á netfangið formadur@odinn.is
Tillögur að lagabreytingum skulu að sama skapi berast á netfangið formadur@odinn.is fyrir 16.mars.
Þær tillögur sem berast verða birtar á heimasíðu félagsins fyrir aðalfund.
https://www.odinn.is/is/um-sundfelagid/log-sundfelagsins-1
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórn Óðins