Aðalfundur Óðins

Ágætu foreldrar

Við minnum á aðalfund Óðins sem haldinn verður þriðjudagskvöldið 27. mars kl 20 í sal Brekkuskóla

Allir foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að mæta og ræða hag barna sinna og leggja sitt af mörkum til eflingar félaginu og starfi þess.

Á dagskrá fundarins eru venjubundin aðalfundarstörf, svo sem skýrsla formanns 2011, ársreikningurinn, kjör stjórnar og nefnda og önnur mál. Veitingar í boði félagsins.

Framboð og tilnefningar til stjórnarsetu sendist til formanns í netfangið formadur@odinn.is.   Hlökkum til að sjá sem flesta foreldra og eigum notalega kvöldstund saman.

Fyrir hönd stjórnar Óðins
Börkur Þór Ottósson
Formaður