Þann 23.mars síðastliðin var Aðalfundur Óðins haldinn í Teríunni í Íþróttahöllinni. Vel var mætt á fundinn ásamt því að Eyleifur Jóhannesson mætti fyrir hönd SSÍ. Farið var yfir almenn aðalfundarmál, ársskýrslu, rekstraráætlun og fjárhagsáætlun.
Þeir sem hafa setið í stjórn sundfélagsins síðastliðið ár gáfu allir kost á sér ásamt því að í hópinn bætist einn varamaður. Stjórnin er því eftirfarandi
Ásta Birgisdóttir, formaður.
Einar Már Ríkarðsson, varaformaður.
Bryndís Vilhjálmsdóttir, gjaldkeri.
Karen Sif Stefánsdóttir, ritari.
Katrín Sif Antonsdóttir, meðstjórnandi.
Breki Arnarsson, meðstjórnandi.
Halla Björk Garðarsdóttir, meðstjórnandi.
Varamenn eru Erla Hrönn Unnsteinsdóttir og Kristín Guðrúnardóttir.
Eyleifur hélt smá tölu um mikilvægi sundiðkunar ásamt því að hann veitti sjö einstaklingum silfurmerki SSÍ sem þakklætisvott fyrir þeirra framlag til sundhreyfingarinnar og sundfélagsins Óðins. Merkin fengu
Halla Björk Garðarsdóttir. Hún hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2009 og hefur lagt mikið til félagsins á þeim tíma
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir. Hún hefur starfað með félaginu til fjölda ára, setið í stjórn og verið formaður félagsins í tvígang. Í dag er hún dómari og situr í stjórn SSÍ
Katrín Sif Antonsdóttir. Hún hefur haldið utan um foreldraráð félagsins og öll þau verkefni sem því fylgja í fjölda ára. Hún er yfirdómari og situr í stjórn félagsins.
Árni Þorsteinsson. Hann starfaði í tugi ára að hinum ýmsu verkefnum sem snéru að félaginu og átti m.a. stóran þátt í undirbúning og skipulagningu móta.
Gestur Jónsson. Hann starfaði fyrir félagi í tugi ára, stóð að uppbyggingu þess og vann að stöðugleika. Hann er fyrrum þjálfari, stjórnarmaður og var formaður í tvígang.
Jóhann G. Möller. Hann er í raun faðir Óðins. Á unga aldri þegar hann var sundmaður sjálfur þá tók hann við þjálfun og hélt utan um almennan rekstur félagsins með hléum frá árunum, 1969-1988. Hann hefur einnig verið skoðunarmaður reikninga félagsins til dagsins í dag.
Ásta Birgisdóttir. Hún er sitjandi formaður félagsins og hefur einnig sinnt því hlutverki áður. Hún hefur lagt mikið til félagsins í gegnum tíðina bæði sem stjórnarmaður og foreldri iðkenda.
Þegar almennum fundarstörfum var lokið þá var boðið upp á umræður um önnur mál. Þar var efst á baugi mikilvægi nýrrar sundlaugar á Akureyri. Aðstöðuleysi sundfélagsins og sú mikla þörf á bættu æfingaumhverfi hefur verið mjög lengi í umræðunni. Ný sundlaug myndi ekki einungis skipta sköpum í því starfi sem sundfélagið stendur að heldur einnig fyrir bæjarbúa alla. Akureyri stækkar og er orðinn vinsæll áfangastaður hjá ferðafólki, innlendu sem erlendu. Það sundlaugarmannvirki sem er í bænum núna er löngu orðið of lítið og tími kominn til að bæta við sundlaug fyrir almenning ásamt 50m yfirbyggðri æfingarlaug. Margir höfðu ýmislegt til málanna að leggja varðandi málefni ásamt því að sérstök nefnd hefur verið stofnuð sem vinnur að því hörðum höndum að berjast fyrir bætti æfingaraðstöðu ásamt auknum lífsgæðum fyrir Akureyringa.
Stjórn sundfélagsins óskar öllum þeim sem hlutu silfurmerki innilega til hamingju ásamt þakkir til allra þeirra sem mættu á fundinn og hlakka til áframhaldandi umræðu um nýja sundlaug.

Ásta Birgisdóttir, formaður, kynnir tillögur af nýrri sundlaug

Gull- og silfurmerkishafar Sundfélagsins Óðins

Eyleifur Jóhannesson flytur tölu

Silfurmerkishafar