Að loknu Sprengimóti

Takk fyrir skemmtilega og árangursríka helgi.  Það var virkilega gaman að sjá hvað margir sáu sér fært um að koma að taka þátt í mótinu okkar í ár.  Gestir komu víða að og áttu krakkarnir skemmtilega helgi saman í blíðunni hérna á Akureyri.

Foreldrar og aðstandendur frá okkar liði og einnig gestanna gerðu mótið okkar að skemmtilegri upplifun fyrir sundfólkið.  Sundfólkið sem tók þátt var á öllum aldri og var bæði gott og gaman fyrir yngra sundfólkið að keppa við þá sem lengra eru komnir.

Gestirnir okkar gistu í Brekkuskóla sem er alltaf jafn jákvæður í að taka á móti sundfólkinu sem kemur lengra að. Sundfélagið vill koma fram þakklæti til allra sem gerðu mótið okkar svona faglegt og flott eins og raun ber vitni.

Til hamingju með árangurinn krakkar þið stóðuð ykkur vel og eruð eins og alltaf frábær hópur af manneskjum sem við erum svo innilega heppin með að fá að vinna með.

Við hlökkum sannarlega til að takast á við tímabilið með ykkur.

 

Sundkveðjur

þjálfarar og stjórn