3ja sæti á Bikar ÍF með 8080 stig.

Óðinn náði 3ja sætinu í Bikarkeppni ÍF í sundi þrátt fyrir að vera aðeins með 7 keppendur, 5 stráka og 2 stúlkur. Óðinn fékk 8080 stig en það var Fjörður sem sigraði í fimmta sinn í röð með 15484 stig.

Í öðru sæti varð ÍFR með 14459 stig. Íþróttafélagið Ösp lenti svo í 4 sæti með 7129 stig og restina rak Nes með 1635 stig.

Keppnin var óvenju spennandi í ár bæði milli Ífr og Fjarðar annarsvegar og hinsvegar Óðins og Asparinnar.