2. hluti ÍM50 undanrásir

Hæ hæ,

jæja þá eru undarásir á degi tvö búinn.

Góður árangur náðist hjá okkar fólki.  Spennandi verður að fylgjast með 200 metra flugi hjá Oddi Viðari en stórbætti sinn árangur og er annar inn í úrslit.

Einnig eru Nanna Björk og Júlía Ýr í úrslitum í 200 metra bringusundi.  Birgir Viktor náði einnig inn í úrslit í 200 metra bringusundi en hann ákvað að skrá sig úr þeirri grein og leggja áherslu á aðrar greinar á mótinu.  Hildur Þórbjörg syndir til úrslita í 200 metra baksundi.  Aðrir sem syntu í morgun voru að sýna ágætis bætingar og stóðu sig með stakri prýði.

Núna hvíla krakkarnir sig fyrir komandi átök en það er virkilega góð stemming í hópnum.

Við biðjum að heilsa heim.

Sundkveðjur