AMÍ 2023 Skráning og verð

Í boði eru eftirfarandi AMÍ pakkar:

Fullur pakki á 28.000.-

  • Gisting frá og með fimmtudagskvöldi 22. júní til mánudags 26. júní
  • Matur frá föstudagsmorgni fram til mánudagsmorguns 26. júní
  • Lokahóf
  • AMÍ bolur

Pakki án gistingar aðfararnótt mánudags á 26.500.-

  • Gisting frá og með fimmtudagskvöldi 22. júní til sunnudags 25. júní
  • Matur frá föstudagsmorgni fram til sunnudags 25. júní
  • Lokahóf
  • AMÍ bolur

Gisti- og fæðispakkar standa einnig dómurum til boða.

Athugið að einnig verður hægt að kaupa stakar máltíðir og miða á lokahóf á meðan á móti stendur. Stakar máltíðir kosta 2.000.- og miði á lokahófið kostar 7.800.-.

Skráning í mat og gistingu

Skráningar í AMÍ pakka skulu berast Sundfélaginu Óðni í tölvupósti á netfangið odinn@odinn.is  fyrir 13. júní. Skráningum skal skila á skráningarblaði sem hægt er að nálgast hér en þar þarf einnig að koma fram fjöldi bola í hverri stærð.

Vinsamlegast athugið að matar- og gistipassar verða afhentir frá 16:00 - 20:00 í Brekkuskóla fimmtudaginn 22. júní og þá aðeins gegn framvísun á staðfestingu á greiðslu (til dæmis útprentun úr heimabanka).

Greiða þarf fyrir AMÍ pakkana í seinasta lagi 20. júní inn á reikning:
0566-26-80180  - kt. 580180 0519

Öllum spurningum varðandi ofangreindar upplýsingar skal beina á netfangið odinn@odinn.is
 
Mótsblaðið okkar!
 
Kíkið endilega á þetta flotta blað með fullt af gagnlegum upplýsingum og fróðleik --> Mótsblað AMÍ 2023