Sundfólk ársins hjá Sundfélaginu Óðni

Örn Kató Arnarsson og Alicja Julia Kempisty voru valin sundfólk ársins hjá
Óðni.

Örn Kató Arnarsson. Hann býr í Svíþjóð þar sem hann æfir sund við bestu
aðstæður og stundar nám. Örn flutti til Svíþjóðar í fyrra til þess að geta einbeitt
sér betur að íþrótt sinni og náð frekari árangri. Hann hefur sýnt mikla framfarir
og hefur æft gríðarlega vel á árinu.
Hann leggur mesta áherslu á lengri sundgreinar sem eru 1500m., 800m. og
400m. skriðsund en hann syndir einnig bringusundsgreinar. Hann hefur náð
góðum árangri og hefur t.d. unnið gullið í unglingaflokki í vestur Svíþjóð í öllum
lengri greinunum.

Alicja Julia Kempisty. Alicja er ung og efnileg sundkona og ein sterkasta
sundkona landsins í sínum aldursflokki og hefur unnið sér sæti í Framtíðarhóp
Sundsambands Íslands síðustu misserin. Hennar sterkustu greinar eru
skriðsundsgreinar, einna helst 200m. skriðsund en þar er hún stigahæst
sundkvenna Óðins með 507 FINA stig. Fjölhæfni hennar þó mikil og er hún
sterk í öllum vegalengdum í skriðsundi en hún er jafnframt öflug baksunds- og
flugsundskona.
Alicja stundar sína íþrótt vel, mætir á allar æfingar og sýnir mikinn metnað með
ástundun sinni.
Sundfélagið Óðinn óskar Alicja Julia og Erni Kató innilega til hamingju.