SÖLUDAGUR Í KVÖLD./ Sérmerktu sundfötin eru komin.

Miðvikud. 18.des kl. 19-20 verður söludagur hjá Sundfélaginu.

Staðsetning: skrifstofa okkar uppá 2. hæð í íþróttahúsinu í Laugargötu  (fyrir neðan sundlaugina)

Sérmerktu sundfötin sem pöntuð voru í haust eru komin. Ég bið ykkur því að koma á þessum tíma og nálgast þau. Kostnaður er 8500 kr. Við erum ekki með posa og verður því að mæta með pening við afhendingu.

Við vorum einnig að fá sendingu frá Speedo sem inniheldur nokkrar tegundir af  sundgleraugum, vaskaskinn, stóru bakpokana sem við höfum verið með og einnig minni bakpoka í 3 litum.
Að auki er eftirfarandi til sölu
Stuttbuxur,
stuttermabolir,
sundhettur,
bakpokar merktir félaginu,
USB penni með sögu félagsins,
Endurskinsljós,
Renndar hettupeysur með merki félagsins, bæði rauðar og bláar. Vil vekja athygli á því að minnstu peysurnar stærð 7-8 (140) eru á 3000 kr.

Allir sem versla eitthvað fá gefins Óðins vatnsbrúsa með


Hér má sjá vöruúrvalið okkar
http://www.odinn.is/is/upplysingar/vorutorgid


ATH þetta er síðasti söludagur fyrir jól :)
________________________________________________________________