Karen með 3 gull á IMOC

IMOC, Opna Íslandsmeistaramótið í Garpasundi, var haldið í Vestmannaeyjum helgina
4-5 maí. Sundfélagið Óðinn átti fulltrúa þar en það var hún Karen
Malmquist. Keppti hún í 50m bak, 50m
skrið og 100m bak. Ekki stóð á árangri og vann hún til gullverðlauna í öllum
greinunum og er því þrefaldur Íslandsmeistari.

Skipulag og móttaka Vestmannaeyinga var frábær, mótið mjög skemmtilegt,
veður frábært og þrjú félög, sem ekki hafa keppt áður á þessu móti mættu til
leiks, en það voru Selfyssingar, ÍBV og Hamar.

 

Sundfélagið óskar Karen innilega til hamingju með þennan glæsilega
árangur.