Fimm úr Óðni valin í Framtíðarhóp SSÍ

Frá vinstri: Magni Rafn Ragnarsson, Jón Ingi Einarsson, Björn Elvar Austfjörð, Alicja Julia Kempisty…
Frá vinstri: Magni Rafn Ragnarsson, Jón Ingi Einarsson, Björn Elvar Austfjörð, Alicja Julia Kempisty og Ísabella Jóhannsdóttir.

Fimm sundmenn frá Óðni voru valin í framtíðarhóp SSÍ sem fer fram helgina 6. - 7. janúar n.k. í Reykjavík. Þau sem voru valin eru Magni Rafn Ragnarsson, Alicja Julia Kempisty, Ísabella Jóhannsdóttir, Jón Ingi Einarsson og Björn Elvar Austfjörð.

Markmið með æfingahelgum Framtíðarhóps er að fræða og hvetja upprennandi sundfólk, einnig til að
styrkja liðsheildina. Vonast er til að þessar helgar virki hvetjandi, auki metnað hjá sundfólki til að ná árangri og að góð vinabönd myndist óháð félögum og búsetu.

Við óskum þeim öllum til hamingju og áfram Óðinn!

Það er hægt að lesa nánar inná akureyri.net