Blue Lagoon bikarkeppni ÍF 8. júní 2013.

http://www.ifsport.is/default.asp?frett=924

Sundfélagið ÓÐINN heldur Blue Lagoon Bikarkeppni ÍF í sundi í samstarfi við Íþróttasamband fatlaðra laugardaginn 8. júní 2013.

Mótaskrá.

Dagskrá:
Laugardagur:
14-15 Upphitun
15:00 Keppni hefst

Keppnin:
Keppt er í Sundlaug Akureyrar sem er 25 m útilaug.

Upphitun hefst kl. 14:00 og mótið 15:00.  Mótið ætti ekki að taka nema um tvo tíma til þrjá tíma.  Reglurnar í ár eru þær sömu og fyrri ár.  Hver keppandi má mest keppa í þremur greinum og hvert félag má mest senda tvo keppendur í hverja grein til stiga. Stigin eru svo reiknuð út frá viðmiðstímum ÍF í flokki viðkomandi sundmanns. Hins vegar mega eins margir keppa í eins mörum greinum og þeir vilja á mótinu. Það þarf bara að koma skýrt fram hver er til stiga í hverri grein.

Keppt verður í eftirfarandi greinum.

1. Grein 200 m skrið karla    2. Grein 200 m skrið kvenna
3. Grein 50 m bak karla       4. Grein 50 m bak kvenna
5. Grein 100 bringa karla     6. Grein 100 bringa kvenna
7. Grein 50 flug karla          8. Grein 50 flug kvenna
9. Grein 100 m skrið karla   10. Grein 100 m skrið kvenna
11. Grein 100 m bak karla   12. Grein 100 m bak kvenna
13. Grein 50 bringa karla     14. Grein 50 bringa kvenna
15. Grein 100 fjór karla       16. Grein 100 fjór kvenna
17. Grein 50 skrið karla       18. Grein 50 skrið kvenna

Mikilvægt er að það komi skýrt fram í hvaða flokkum sundmennirnir eru.  Ef sundmennirnir hafa ekki verið flokkaðir formlega verður einnig að geta þess í skráningu.
Skráningum skal skilað til thor.jonsson@advania.is með cc á if@isisport.is eigi síðar en mánudaginn 3. júní en skráningargögn hafa þegar verið send til aðildarfélaga Íþróttasambands fatlaðra.

Nánari upplýsingar fást hjá:

Jón Heiðar    895 8684    þjálfari
Halla Björk Garðarsdóttir, gjaldkeri og starfsmaður félagsins Netfang: odinn@odinn.is Sími: 461 3909 / 867-5667
Heiðar Ólason, formaður Netfang: formadur@odinn.is Sími: 461 4566 / 867 0808