AMÍ 2011 verður haldið á Akureyri dagana 23.-26. júní. Keppt verður í Sundlaug Akureyrar við Þingvallastræti sem er 25 m útilaug með 6 brautum.
Matur og gisting
Boðið verður upp á gistingu í Brekkuskóla á Akureyri. Skólinn er staðsettur við hlið sundlaugarinnar í um 20 metra fjarlægð. Eins og venja er með sundmót þarf fólk að hafa með sér dýnur og annan viðlegubúnað. Matur verður einnig framreiddur í Brekkuskóla. Lokahóf verður í Sjallanum og um matinn sér veitingahúsið Greifinn.
Verð
Við tökum þátt í að létta undir í kreppunni þannig að þrátt fyrir verðhækkanir á aðföngum þá höldum við nánast óbreyttu verði á milli ára. Pakki sem inniheldur gistingu og mat frá og með miðvikudagskvöldi 22. júní, til og með mánudagsmorgni 27. júní, lokahóf og hinn sívinsæla AMÍ bol kostar krónur 21.000 á mann. Til samanburðar var pakkinn í fyrra á 17.500, m.v. fæði frá hádegi á fimmtudegi. Kjósi einhvern þann pakka er það 18.000 kr.
Greiðist inn á reikning: 1145-26-80180 kt. 580180-0519 fyrir miðvikudaginn 22. júní.
Skráning í mat og gistingu
Skráningar vegna gistingar skulu berast Óðni, í tölvupósti á netfangið odinn@odinn.is fyrir 15. júní. Við getum ekki ábyrgst að verða við skráningum sem berast síðar, né heldur endurgreiðslu á skráningum eftir þennan tíma.
Vinsamlegast athugið að matar- og gistipassar verða afhentir frá 16:00 - 19:00 í Brekkuskóla miðvikudaginn 22. júní og þá aðeins gegn framvísun á staðfestingu á greiðslu (til dæmis útprentun úr heimabanka).
Spurningum varðandi AMÍ-pakkann skal beina á odinn@odinn.is.
Skráning sundmanna
Skráning í greinar er hjá Sundsambandi Íslands.
Hy-tek skrá fyrir AMÍ 2011
Þeir sem ekki geta skráð með Hy-tek forittinu hafi samband við SSÍ sundsamband@sundsamband.is. Skráningarfrestur er til miðnættis 13. júní. Sjá nánar á heimasíðu SSÍ
Nánari upplýsingar
Það er hægt að fá ýmsar upplýsingar um mótið hér á heimasíðunni og upplýsingar bætast við þegar nær dregur. Einnig er fólki bent á að skoða heimasíðu Akureyrarstofu, en þar er meðal annars hægt að sjá hvað verður í boði til afþreyingar þessa daga.
Munið það er alltaf gott veður í Eyjafirði. Mætum með bros í hjarta svo við getum átt saman ánægjulega daga á Akureyri.
Með sundkveðjum, f.h. Óðins.Börkur Þór Ottósson, formaður

