
Bryndís Rún Hansen er íþróttamaður Akureyrar fyrir árið 2011, þriðja árið í röð, en kjörinu var lýst á Hótel KEA í kvöld. Þetta er glæsilegur árangur og verðskuldaður eftir frábært ár, m.a. fimm Íslandsmet og fimm Íslandsmeistaratitla.
Að kjöri íþróttamanns Akureyrar sendur stjórn ÍBA og fulltrúar fjölmiðla á Akureyri. Í öðru sæti varð handknattleiksmaðurinn Oddur Gretarsson og júdókonan Helga Hansdóttir þriðja.
Nafnbótinni íþróttamaður Akureyrar fylgir glæsilegur farandbikar sem varðveittur hefur verið í Sundlaug Akureyrar undanfarin ár, þar sem gestir og gangandi geta virt hann fyrir sér.


Áfrma Óðinn.
Innilega til hamingju með titilinn. Átt þetta sannarlega skilið.
Innilega til hamingju Bryndís Rún
Það verður gaman að fylgjast með þér áfram.