Tímatöflur að verða klárar

Dilla er búinn að fá staðfesta tímtöflu fyrir Glerárlaug og við munum staðfesta tímatöfluna fyrir Akureyrarlaug á morgun. Það verða smávægilegar breytingar á einhverjum tímum.

Viðgerð miðar samkvæmt plani í Akureyrarlaug og ef veðrir verður til friðs, þá munum við hefja allt vetrarstarfið í upphafi næstu viku, eins og áður hefur komið fram.