Sundæfingar á vorönn

Nú líður senn að því að haustönn ljúki og við förum í jólafrí. Æfingar munu svo byrja aftur 4. janúar. 
Allir sundkrakkar verða áfram sjálfkrafa skráðir á sundæfingar NEMA ef póstur er sendur með upplýsingum um að barnið ætli að hætta. 
Ég vil því endilega biðja foreldra þeirra barna sem ekki koma til með að æfa sund eftir áramót að senda póst á odinn@odinn.is með upplýsingum og nafn og kt. barnsins. 

Þetta er afar mikilvægt því við erum enn með biðlista í nokkra hópa og viljum við því vita það tímanlega ef það verða laus pláss eftir áramót. 
Við munum einnig fara í innheimtu á æfingagjöldum um næstu mánaðarmót og því er mikilvægt að skrá þau börn út sem ekki munu æfa svo þau fái ekki greiðsluseðil.