Árlegt Gullmót Óðins verður haldið í Glerárlauginni föstudaginn 3. febrúar. Þetta er sýningarmót fyrir öll börn í sundskóla Óðins, bæði úr Akureyrar- og Glerárlaug.
Mótið er sett upp þannig að yngri krakkarnir synda 1-4 ferðir, þeir reyndari 6 ferðir (100 m) og allir fá verðlaun að því loknu. Foreldrar og aðrir fjölskyldumeðlimir eru hvattir til að koma og sjá framfarirnar hjá börnunum.
Skráningargjald á mótið er 500 krónur sem greiðist við komu.
Til að biðin verði sem styðst þá mæta börnin í hópum eins og á aðra viðburði hjá okkur.
Tímasetningar (áætlun):
kl. 14.45-15.15 Gullfiskar
kl. 15.15-15.45 Höfrungar
kl. 15.45-16.15 Krossfiskar
kl. 16.15-16.45 Sæhestar Ak.laug, Sæhestar 1 og 2 Glerárlaug
kl. 16.45-17.15 Sæhestar 3 Glerárlaug og Skjaldbökur 1 og 2
Hlökkum til að sjá ykkur!
Þjálfarar