Gullmót KR 10-12 febrúar

Gullmót KR fer fram í Laugardalslaug 10.-12. febrúar. Mótið er opið öllum aldursflokkum, þar sem keppt er í 60 greinum í 5 mótshlutum, auk KR Super Challenge skriðsundskeppni á laugardagskvöldi. Eins og áður verður keppendum boðið upp á góða gistingu og mat í Laugalækjarskóla á meðan á mótinu stendur.

Á laugardagkvöldinu fer fram keppnin KR SUPER CHALLENGE í 50 m skriðsundi, þar sem tónlist, sund, skemmtun og ljósasýning verða í aðalhlutverki. Keppt verður í aldursflokkunum 11-12 ára, 13-14 ára, 15-17 ára og í opnum flokki. Átta hröðustu karlarnir og konurnar í opnum flokki keppa svo til úrslita með útsláttarfyrirkomulagi (8, 4 ,2). Undanrásir fara fram á föstudagskvöldinu þar sem átta bestu í hverjum aldursflokki öðlast þátttökurétt á KR SC. Í opna flokknum verða veitt peningaverðlaun fyrir 1. og 2. sætið.

Ferðatilhögun
Farið verður með rútu frá planinu sunnan við Íþróttahöllina stundvíslega kl. 9 að morgni föstudagsins 10. febrúar og til baka á sunnudag að móti loknu um kl 18:00.

Gisting og matur er í Laugalækjarskóla rétt hjá sundlauginni. Heimasíða Gullmóts KR

Skráningar Óðins

Búnaður:
Sundföt, gleraugu, sundhetta
Handklæði 2-3
Skór til að vera í á bakkanum
Hlýir sokkar
Óðinsgalli, bolur
Vatnsbrúsi

Til gistingar í skóla:
Vindsæng/dýna
Sæng/svefnpoki
Koddi/lak
Náttföt
Tannbursti og tannkrem

Nesti - peningur:
Sundmenn þurfa að hafa með sér nesti fyrsta daginn en fá kvöldmat í skólanum strax fyrsta kvöldið. Þá getur verið gott að eiga eitthvað hollt og gott til að narta í yfir helgina, t.d. gróft kex og ávaxtasafa. Sælgæti og sætabrauð er stranglega bannað. Þá þurfa sundmenn að hafa pening meðferðis til að kaupa sér næringu áður en lagt verður af stað heim á sunnudag, 1.500 kr. Fararstjórar geta geymt pening. Stoppað verður á leiðinni og t.d. pantað pizzuhlaðborð fyrir alla sem vilja.

Fararstjórar:
Larisa (Alexandra afrkes og Kristinn úrvals) 865 9860
Katrín (Stefán Gretar Úrvals)
Birkir (Kristófer Óli Úrvals) 660 2638 (verður ekki með í rútunni)

Þjálfarar:
Ragnheiður Runólfsdóttir og Viktor Emil Sigtryggsson

Kostnaður:
Heildarkostnaður á mann er 26.000 þúsund kr. (sjá sundurliðun hér fyrir neðan). Upp í það getur hver og einn nýtt það sem hann kann að eiga úr einstaklingsfjáröflunum. Upplýsingar um inneign gefur fjáröflunarnefnd sundfélagsins, fjaroflun@odinn.is. Leggist inn á reikning Óðins 0566-26-80180 kt. 580180-0519 fyrir brottför.

Áríðandi:
Ef barn er með fæðuofnæmi, annarskonar ofnæmi eða er á lyfjum er mikilvægt að foreldrar setji sig í samband við fararstjóra.

Fylgist áfram með hér á síðunni því nánari upplýsingar koma inn.